Aðild að Kötlu félagsmannasjóði eiga eingöngu starfsmenn sveitafélaga, einnig eiga aðild að sjóðnum starfsmenn hjá Hjallastefnunni og sjálfseignarstofnunum sem eru með ákvæði um Félagsmannasjóð í kjarasamningi. Réttur sjóðsfélaga er bundinn við aðild að sjóðnum líkt og reglur sjóðsins kveða á um.
Úthlutun úr sjóðnum fer fram 1. febrúar. Hægt er að sækja um hér
Þeir sem hafa fengið greitt úr sjóðnum árið 2024 vegna starfa sinna árið 2023 þurfa ekki að sækja um þar sem viðeigandi gögn og bankaupplýsingar liggja fyrir.
Hlutverk sjóðsins er að auka tækifæri sjóðsfélaga til starfsþróunar, m.a. með því að sækja sér fræðslu og endurmenntun og með því að sækja ráðstefnur, þing og námskeið til að þróa sína starfshæfni.
Ekki er skilyrði að hafa lagt út fyrir námi eða námskeiði til þess að hljóta styrk úr sjóðnum.
Styrkur úr Kötlu félagsmannasjóði skerðir ekki möguleika á styrkjum frá öðrum sjóðum stéttarfélaganna
Ef spurningar vakna um rétt til greiðslu úr sjóðnum hafðu þá samband við okkur í gegnum netfangið sfk@stkop.is eða í síma 554-5124
