Fara í efni

Hlutverk trúnaðarmanna

Trúnaðarmenn eru fulltrúar stéttarfélagsins á vinnustöðum og gegna lykilhlutverki í að tryggja réttindi og kjör félagsfólks. Þeir eru tengiliður milli félagsmanna, atvinnurekenda og félagsins sjálfs, standa vörð um að kjarasamningar séu virtir og að ekki sé gengið á rétt starfsmanna. 

Hlutverk þeirra felst meðal annars í því að fylgjast með að réttindi séu virt, miðla upplýsingum milli allra aðila, taka á móti kvörtunum og ábendingum og leita lausna þegar ágreiningur kemur upp. 

Trúnaðarmenn standa þó aldrei einir, því þeir hafa ávallt stuðning félagsins til að leysa úr málum sem upp koma. Ef ágreiningur reynist flókinn geta þeir snúið sér beint til stéttarfélagsins eftir aðstoð. 

Allir trúnaðarmenn félagsins funda reglulega. Þar er fjallað bæði um kjara- og réttindamál og um aðstæður trúnaðarmanna sjálfra í starfi. Góður trúnaðarmaður þarf ekki að kunna allt, heldur að hafa áhuga á velferð samstarfsfólksins, vera vakandi fyrir aðstæðum á vinnustaðnum og vita hvert skal leita eftir upplýsingum. Mikilvægt er að hann hafi vilja til samstarfs, réttlætiskennd og góða samskiptahæfni. Þeir sem hafa tekið að sér trúnaðarstörf upplifa oft að starfið sé bæði gefandi og fræðandi, að það efli samstöðu á vinnustaðnum og styrki einstaklinginn sjálfan.

  • Standa vörð um kjör og réttindi starfsfólks/ félagsfólks.
  • Vera fulltrúi SfK á vinnustað hvað varðar framkvæmd kjarasamnings og réttargæslu félagsfólks.
  • Koma upplýsingum á framfæri við starfsfólk, bæði frá stéttarfélagi og atvinnurekanda.
  • Vinna að lausn vandamála sem kunna að koma upp á vinnustað og óska eftir aðstoð starfsfólks SfK ef þarf.
  • Vera fulltrúi í samstarfsnefnd á vinnustað vegna endurskoðunar stofnanasamnings þar sem það á við.
  • Fylgjast með nýráðningum og uppsögnum.
  • Fylgjast með nýráðningum og uppsögnum.
  • Sækja fræðslu trúnaðarmanna.
  • Trúnaðarmenn eru tengiliður milli SfK og félagsfólks á vinnustað og þurfa að gæta þess m.a. að kjarasamningar séu haldnir og að réttur starfsfólks sé virtur. Þeir eru til aðstoðar ef og þegar upp rís ágreiningur um samningsbundin kjör starfsfólks, hvort sem óskað er af starfsfólki eða atvinnurekanda.

Trúnaðarmenn eru fulltrúar stéttarfélagsins úti á vinnustöðum. Þeir standa þó aldrei einir sem fyrr segir, því stjórn og starfsfólk félagsins eru þeim til stuðnings við að leysa úr vanda sem upp kann að koma og heyra undir starfssvið félagsins. Ef ágreiningur kemur upp getur það falið í sér að trúnaðarmaður þarf að kynna sér málavexti til þeirra sem málið varða, taka við athugasemdum/ábendingum samstarfsfólks og krefjast úrbóta ef í ljós kemur að brotið er á samstarfsmanni. Trúnaðarmaður getur óskað eftir aðstoð starfsfólks SfK ef lausn næst ekki á vinnustaðnum.

Trúnaðarmannaráð

Trúnaðarmenn ásamt stjórn SfK mynda Trúnaðarmannaráð SfK.

Hlutverk Trúnaðarmannaráðs er að fjalla um þau málefni á fundum sínum sem snerta vinnu og aðstöðu trúnaðarmanna í störfum sínum ásamt fræðslu um þau þjóðfélagsmál sem hæst ber hverju sinni og að gagni koma í störfum trúnaðarmanna. Einnig er það hlutverk Trúnaðarmannaráðs að fjalla um kjara- og réttindamál félagsfólks, sérstaklega þegar gera á almenna kjarasamninga. Formaður félagsins er jafnframt formaður Trúnaðarmannaráðs.

Trúnaðarmannaráð skal vinna að stefnumótun fyrir félagið í samráði við stjórn og annast undirbúning fyrir aðalfund félagsins, þar á meðal að kjósa uppstillingarnefnd og laganefnd þegar það á við. Á fundum Trúnaðarmannaráðs skal m.a. gerð grein fyrir fjárhagsstöðu sjóða félagsins og lögð fram skýrsla yfir starfsemina einu sinni á ári. Trúnaðarmannaráð skal ákveða hvaða fastanefndir skulu starfa, setja þeim reglur og kjósa í þær. Trúnaðarmannaráð getur einnig stofnað aðrar nefndir eða vinnuhópa innan félagsins í kringum sérstök verkefni. Trúnaðarmannaráð skal fjalla um kjara- og réttindamál og annast undirbúning kjarasamninga.

Hvað þarf trúnaðarmaður að hafa til að bera?

Góður trúnaðarmaður þarf fyrst og fremst að hafa áhuga á vellíðan og starfsöryggi félaga sinna. Hann þarf að vera vakandi fyrir vinnuumhverfinu og eiga gott með mannleg samskipti, hafa ríka réttlætiskennd, eiga auðvelt með samstarf og vera óhræddur við að axla ábyrgð.
Vinnustaðir félagsfólks SfK eru sumir stórir og starfsfólk sinna ólíkum störfum. Til þess að rödd sem flestra heyrist í Trúnaðarmannaráði félagsins er nauðsynlegt að starfsfólk úr ólíkum starfsgreinum gefi kost á sér til trúnaðarstarfa. Kjörinn trúnaðarmaður þarf því að þekkja til sem flestra starfa á sínum vinnustað og vera í góðu sambandi við félaga sína.

Góður trúnaðarmaður þarf fyrst og fremst að hafa áhuga á vellíðan og starfsöryggi félaga sinna. Hann þarf að vera vakandi fyrir vinnuumhverfinu og eiga gott með mannleg samskipti, hafa ríka réttlætiskennd, eiga auðvelt með samstarf og vera óhræddur við að axla ábyrgð.

Þeir sem sinnt hafa trúnaðarstörfum fyrir stéttarfélög þekkja það að sú reynsla nýtist þeim ekki síður vel í starfi. Þekking á málefnum starfsfólks, leikni í mannlegum samskiptum og reynsla af samstarfi við lausn verkefna á sviði starfsmannamála er mjög verðmæt.

SfK stefnir að því alla daga að efla félagið í baráttunni fyrir bættum kjörum og auknum réttindum félagsfólks. Vinnumarkaðurinn er að breytast og hlutverk trúnaðarmanna verður sífellt meira og mikilvægara. SfK hvetur alla trúnaðarmenn að fara á þau námskeið sem boðið er upp á til að þeir verði betur í stakk búnir til að sinna skyldum sínum.

Lög um stéttarfélög og vinnudeilur

Lög um kjarasamninga opinberra starfsmanna