Útilegukort
Starfsmannafélag Kópavogs (SfK) býður félagsfólki sínu að kaupa útilegukortið á sérkjörum. Kortið veitir aðgang að fjölda tjaldsvæða víðs vegar um landið og er frábær leið til að ferðast um landið á hagkvæman og sveigjanlegan hátt.
Hvað er útilegukortið?
Útilegukortið veitir fjölskyldum og einstaklingum aðgang að yfir 40 tjaldsvæðum víðs vegar um landið. Gistingin er innifalin fyrir 2 fullorðna og allt að 4 börn (15 ára og yngri) í tjaldsvæði, fellihýsi, húsbíl eða öðrum eigin búnaði.
Afhending og verð
- Kortið er afhent í pósti eða sótt á skrifstofu samkvæmt samkomulagi.
- Verð er með niðurgreiðslu frá félaginu og er birt árlega.
Félagar eiga rétt á 1 korti á ári. - Kortin eru rafræn og/eða sendi í pósti. Fyrir þau sem það vilja geta félagar komið á skrifstofuna og keypt kort.
Nánari upplýsingar um tjaldsvæðin og gildistíma má finna á vef útgefanda kortsins:
Útilegukortið