Fara í efni
28.09.2022 Fréttir

Umsókn orlofshúsa yfir jól og áramót 2022

Deildu

Þann 29. september 2022kl. 13:10 verður opnað fyrir rafrænar umsóknir vegna orlofshúsa fyrir tímabilið jól og áramót 2022. Um vikudvöl er að ræða og punktafrádráttur 20 punktar. Hægt er að senda inn umsókn til og með 20. október 2022. Ekki skiptir máli hvenær á umsóknartímabilinu frá 29. september til 20. október sótt er um. Hægt er að sækja um fyrsta og annan valkost.
Leigutímabil er eftirfarandi:
Jólavika: 22. - 29.12.2022
Áramótavika: 29.12.2022 - 5.1.2023

Umsóknartímabil er eftirfarandi:

Umsóknarfrestur hefst: 29. september 2022
Umsóknartímabili lýkur: 20. október 2022
Úthlutun fer fram: 21. október 2022
Greiðslufrestur er til: 26. október 2022
Opnað fyrir bókanir virkra félaga: 28. október 2022

Hvernig á að sækja um orlofshús?
Félagsmenn sækja um rafrænt á orlofshúsavefnum.

  • Fyrst þarf að skrá sig inn á orlofsvefinn efst hægra megin í horninu „innskráning“. Sækja skal um með því að fara í „Laus tímabil“ eða „Umsókn um úthlutun“. Gæta skal að því að velja réttan mánuð (heiti mánaðar verður appelsínugult) og velja þann orlofskost og tímabil sem sótt er um. Klára þarf allt umsóknarferlið og senda umsóknina inn. Staðfesting á innsendri umsókn berst í tölvupósti til þess netfangs sem skráð er á orlofsvefnum. Hægt er að skoða skráningu undir „síðan mín“ „mínar upplýsingar“.
  • Ekki skiptir máli hvenær á skráðu umsóknartímabili sótt er um. Hægt er að sækja um fyrsta og annan valkost. Að úthlutun lokinni fá félagsmenn niðurstöður sendar í tölvupósti á skráð netfang á orlofsvef. 
  • Greiðslufrestur er fimm dagar frá tilkynningu um úthlutun og fer greiðsla fram rafrænt í gegnum orlofsvefinn með öruggu greiðslukerfi Saltpay/Borgunar.
  • Að greiðslufresti loknum eru orlofskostir sem ekki leigðust út boðnir virkum félagsmönnum undir reglunni „fyrstur kemur fyrstur fær“. Á orlofsvefnum geta félagsmenn bókað lausa orlofskosti beint án úthlutunarferlis. Gilda þar sömu reglur um punkta og verð.
  • Ekki er tekið á móti umsóknum í tölvupósti.
  • Reglur og skilmála félagsins er hægt að kynna sér á orlofsvefnum og áður en greiðsla fer fram.

Ef félagsmaður hefur ekki tök á að sækja um rafrænt eða þarf aðstoð við bókunarkerfið er hægt að hafa samband við skrifstofu félagsins í síma 554-5124. Ekki er tekið á mótum umsóknum í tölvupósti.