Fara í efni
13.01.2025 Fréttir

PÁSKAÚTHLUTUN 2025

Deildu

UMSÓKNARTÍMABIL VEGNA PÁSKA 2025

SÆKJA ÞARF UM Í SÍÐASTA LAGI 14. FEBRÚAR 2025 Á ORLOFSVEFNUM


Þann 31. janúar verður opnað fyrir rafrænar umsóknir vegna orlofshúsa fyrir tímabilið Páskar 2025. Um vikudvöl er að ræða og punktafrádráttur 20 punktar. Hægt er að senda inn umsókn til og með 14. febrúar 2025. Ekki skiptir máli hvenær á umsóknartímabilinu frá 31. janúar til 14. febrúar sótt er um. Hægt er að sækja um fyrsta og annan valkost.

Leigutímabil er eftirfarandi:
Páskavika: 16. – 23. apríl 2025

Umsóknartímabil er eftirfarandi:
Umsóknarfrestur hefst: 31. janúar 2025
Umsóknartímabili lýkur: 14. febrúar 2025
Úthlutun fer fram: 17. febrúar 2025
Greiðslufrestur er til og með: 24. febrúar 2025
Opnað fyrir bókanir virkra félaga: 26. febrúar 2025


Hvernig á að sækja um orlofshús?
Á heimasíðu Starfsmannafélags Kópavogs er smellt á Mínar síður efst í hægra horninu og þar þarf að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum. Sækja skal um með því að fylgja eftirfarandi: Valmynd - Umsóknir - Páskar 2025. Þá birtist úthlutunarvika og þær eignir sem eru í boði. Munið að smella "Staðfesta" í lok umsóknar.

Staðfesting á innsendri umsókn berst í tölvupósti til þess netfangs sem skráð er á orlofsvefnum. Það félagsfólk sem ekki er með rafræn skilríki getur haft samband við skrifstofu SfK í síma 554 5124 sem aðstoðar við umsóknina. Ekki skiptir máli hvenær á skráðu umsóknartímabili sótt er um.

Að úthlutun lokinni fær félagsfólk niðurstöður sendar í tölvupósti á skráð netfang á orlofsvef. Þegar tilkynning um úthlutun berst skal ganga frá greiðslu innan tilsetts tíma rafrænt á orlofsvefnum með greiðslukerfi Teya/Borgun. Þegar úthlutun er lokið og greiðslufrestur er liðinn verður þeim boðið að fá húsið sem næstir eru í úthlutunarröðinni.

Á fyrirfram auglýstum tíma eru orlofskostir sem eftir standa opnaðir fyrir beina bókun undir reglunni "fyrstur kemur, fyrstur fær" án úthlutunarferlis. Gilda þar sömu reglur um punkta og verð. Ekki er tekið á móti umsóknum í tölvupósti.

Reglur og skilmála SfK er hægt að kynna sér á orlofsvefnum og áður en greiðsla orlofskosta fer fram. Starfsfólk skrifstofu SfK er ávallt reiðubúið að veita aðstoð við orlofsvefinn í síma 554 5124