- Páskavika 2022 er vikan 13 - 20. apríl
- Umsóknartímabil hefst 12. febrúar
- Umsóknartímabili lýkur 2. mars
- Úthlutun fer fram 4. mars
- Greiðslufrestur er til 9. mars
- Opnar fyrir bókanir virkra félaga 11. mars
PÁSKAVIKA 2022 - SÆKJA ÞARF UM PÁSKAVIKU Í SÍÐASTA LAGI 2. MARS Á ORLOFSVEFNUM
Leigutímabilið yfir páska 2022 er frá miðvikudeginum 13. apríl til miðvikudagins 20. apríl.
Þann 12. febrúar opnar fyrir umsóknir vegna úthlutunar orlofshúsa um páskana og verður opið fyrir umsóknir á orlofsvefnum til og með 2. mars 2022. Ekki skiptir máli hvenær á umsóknartímabilinu sótt er um og er hægt að sækja um fyrsta og annan valkost. Orlofskerfið raðar umsóknum eingöngu eftir punktastöðu félagsmanna.
Úthlutun fer fram 4. mars 2022 og eru niðurstöður sendar í tölvupósti á skráð netfang á orlofsvef. Greiðslufrestur er til og með 9. mars 2022.
Félagsmenn senda sjálfir inn rafræna umsókn um páskaviku á orlofsvefnum á þessu tímabili. Fyrst þarf að skrá sig inn á orlofsvefinn efst hægra megin í horninu "innskráning". Sækja skal um með því að fara í "Laus tímabil" eða "Umsókn um úthlutun".Gæta skal að því að velja réttan mánuð (heiti mánaðar verður appelsínugult) og velja það orlofshús og tímabil sem sótt er um. Klára þarf allt umsóknarferlið og senda umsóknina inn. Staðfesting á innsendri umsókn berst í tölvupósti til þess netfangs sem skráð er á orlofsvefnum.
Hægt er að skoða skráningu undir "síðan mín" "mínar upplýsingar".Þeir félagsmenn sem ekki eru með rafræn skilríki geta haft samband við skrifstofu félagsins í síma 554 5124 sem aðstoðar við umsóknina. EKKI ER TEKIÐ Á MÓTI UMSÓKNUM Í TÖLVUPÓSTI.
Þegar úthlutun er lokið og greiðslufrestur er liðinn verða þeir orlofskostir sem eftir standa boðnir þeim sem næstir eru í úthlutunarröðinni.
Þann 11. mars opnar orlofsvefurinn og allir orlofskostir sem ekki leigðust út boðnir virkum félagsmönnum undir reglunni "fyrstur kemur fyrstur fær". Þar geta félagsmenn bókað lausa orlofskosti beint án úthlutunarferlis. Um vikuleigu er að ræða og punktafrádráttur 20.
Ekki er heimilt að nýta húsin í sóttkví eða einangrun, reglur og skilmála félagsins er hægt að kynna sér á orlofsvefnum og áður en greiðsla orlofskosta fer fram.
HVER FÆR ÚTHLUTAÐ ORLOFSKOSTI ?
Ef tveir félagsmenn eða fleiri sækja um sama stað og sömu dagsetningar fær sá félagsmaður úthlutun sem hefur flesta punkta. Punktastöðu er hægt að skoða undir "síðan mín" "mínar upplýsingar".
Ef félagsmaður telur að punktastaða sín sé ekki rétt skal senda vinnuveitandavottorð til félagsins og óska eftir að farið verði yfir punktastöðu áður en sótt er um. Vinnuveitandavottorð færðu hjá þínum yfirmanni eða launadeild.Orlofskerfið virkar þannig að það flokkar allar umsóknir sem bárust á orlofsvefnum á umsóknartimabili. Því næst fer kerfið yfir allar umsóknirnar og úthlutar þeim orlofskostum sem sótt var um til þess félagsmanns sem flesta punkta hefur.
Ef ekki er hægt að úthluta félagsmanni orlofskosti sem sótt var um í fyrsta sæti þá reynir kerfið að verða við því að úthluta þeim félagsmanni þann orlofskost sem sótt var um í öðru sæti.Vegna þessa er mikilvægt að félagsmenn sæki um á umsóknartimabili þá orlofskosti og tímasetningar sem henta örugglega.
Félagsmenn sem afþakka þann orlofskost sem sótt var um og fékkst úthlutað detta við það út úr úthlutunarferlinu og næsta í röðinni verður boðinn sá orlofskostur.
Félagsmenn geta því ekki hafnað úthlutuðum orlofskosti og valið sér annan í staðinn.Ef eitthvað óvænt verður til þess að félagsmaður geti ekki nýtt sér úthlutun þarf hann að hafa samband við skrifstofu strax. Greiddir orlofskostir fást ekki endurgreiddir.
Þegar úthlutun er lokið og greiðslufrestur er liðinn verða þeir orlofskostir sem eftir standa boðnir þeim sem næstir eru í úthlutunarröðinni.
Að því loknu er opnað fyrir orlofsvefinn og allir orlofskostir sem ekki leigðust út boðnir virkum félagsmönnum undir reglunni "fyrstur kemur fyrstur fær". Þar geta félagsmenn bókað lausa orlofskosti beint án úthlutunarferlis.Það athugast að allar greiðslur vegna orlofskosta fara i gegnum orlofskerfið og örugga greiðslugátt Saltpay/Borgunar.
