Í morgun bárust Starfsmannafélagi Kópavogs (SfK) fregnir af því að stjórnendur Kópavogsbæjar reyndu nú með beinum hætti hafa áhrif á atkvæðagreiðslu félagsfólks um verkfall vegna kjaradeilu SfK við Samband íslenskra sveitarfélaga.
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur undanfarna daga vísvitandi reynt að þvæla umræðuna og haldið frammi rangfærslum um ágreiningsatriði við fjölmiðla og stjórnendur sveitarfélaga.
Stjórnendur Kópavogsbæjar dreifa nú þessum sömu rangfærslum til starfsmanna sinna með það að markmiði að draga úr þátttöku í atkvæðagreiðslum og koma í veg fyrir verkföll í sveitarfélaginu.
SfK fordæmir þessa aðför stjórnenda Kópavogsbæjar að lýðræðislegri kosningu félaga okkar og hvetur félagsfólk til að sýna samstöðu og greiða atkvæði um verkfall skólastarfsfólks. Þitt atkvæði skiptir máli.