Fara í efni
27.05.2024 Fréttir

Nýtt orlofshús Starfsmannafélags Kópavogs

Deildu

Birkihlíð er nýr orlofskostur SfK í Munaðarnesi. Opnað verður fyrir útleigu til félagsfólks 31. maí nk. kl. 10:00. Verður sá háttur hafður á að ,,FYRSTUR KEMUR FYRSTUR FÆR“

Birkihlíð er orlofshús á tveimur hæðum sem staðsett er í Munaðarnesi í Borgarfirðinum um 20 km fyrir utan Borgarnes, skammt frá Bifröst. Húsið 116,6 fermetrar það er með sólpalli, heitum potti og öllum hefðbundnum búnaði.

Svefnpláss er fyrir 8 manns. Á efri hæðinni er anddyri, stórt svefnherbergi með hjónarúmi auk lítils salernis, samliggjandi stofa og borðstofa þaðan sem opið er inn í eldhús og hægt að ganga þaðan beint út á pall að grillinu. Á neðri hæð hússins er sjónvarpskrókur með svefnsófa auk tveggja svefnherbergja með aðskildum rúmum. Þar er einnig stórt baðherbergi með þvottavél og sturtu. Af neðri hæðinni er hægt að ganga út á pallinn þar sem heiti potturinn er.