Fara í efni
05.04.2018 Fréttir

Námskeið um lífeyrismál við starfslok hjá Brú

Deildu
Brú lífeyrissjóður heldur námskeið um lífeyrisréttindi við starfslok fyrir sjóðfélaga Brúar lífeyrissjóðs, Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar og Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar í húsakynnum sjóðsins, Sigtúni 42, Reykjavík, miðvikudaginn 11. apríl. Á námskeiðinu verður farið almennt yfir helstu lífeyrisréttindi sjóðfélaga, hvar upplýsingar um réttindi er að finna og spurningum svarað sem brenna á sjóðfélögum um lífeyrismál. Brú lífeyrissjóður rekur þrjár ólíkar deildir með mismunandi réttindakerfum og er námskeiðið því skipt upp eftir því. Takmarkaður fjöldi sæta eru í boði á hvert námskeið og nauðsynlegt að sjóðfélagar skrái þátttöku sína. Námskeið fyrir hverja deild tekur um það bil klukkustund.
  • Klukkan 16.30: B deild Brúar lífeyrissjóðs – Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar – Lífeyrissjóður starfsmanna Kópavogsbæjar
  • Klukkan 17.30: A deild
  • Klukkan 18.30: V deild
Smelltu hér til að skrá þig á námskeiðið.