03.03.2020
Lítill gangur í kjaraviðræðum

Lítið hefur þokast í samkomulagsátt í kjaraviðræðum BSRB við viðsemjendur undanfarna daga. Rætt hefur verið um útfærslu styttingu vinnuvikunnar hjá vaktavinnufólki og jöfnun launa milli markaða án þess að niðurstaða hafi náðst. Verkföll aðildarfélaga bandalagsins munu hefjast mánudaginn 9. mars ef kjarasamningar nást ekki fyrir þann tíma. „Það eru mikil vonbrigði að við höfum ekki náð að þokast nær ásættanlegri niðurstöðu. Það er stutt í að verkfallsaðgerðir hefjist og mörg stór mál sem bíða úrlausnar,“ segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB. Kjarasamningar þorra aðildarfélaga BSRB hafa verið lausir frá 1. apríl 2019, eða í um 11 mánuði. Aðildarfélög bandalagsins hafa falið BSRB að semja um stór sameiginleg mál á borð við styttingu vinnuvikunnar, orlofsmál, launaþróunartryggingu, jöfnun launa á milli markaða og fleira. Launaliðurinn og sértæk mál eru hins vegar á borði hvers aðildarfélags. Faxaflóahafnir vegna rúmlega tuttugu félagsmanna. „Fulltrúar í samninganefnd eru afar ánægðir með samninginn, enda má í honum finna flest þau atriði sem félagið hefur verið að berjast fyrir,“ segir meðal annars um samninginn í frétt á vef Sameykis. Viðræður Sameykis við aðra viðsemjendur ganga verr. Fundur með samninganefnd ríkisins á þriðjudag var tíðindalítill og lítill áhugi á því hjá viðsemjendum félagsins að ná samkomulagi. „Það verður að segjast að þrátt fyrir þessi góðu tíðindi sem greint er frá hér að ofan þá er ekki mikil bjartsýni ríkjandi í okkar herbúðum og undirbúningur fyrir verkfall því í fullum gangi,“ segir í frétt félagsins.