Fara í efni
20.06.2024 Fréttir

Kosið um nýja kjarasamninga við Samband íslenskra sveitarfélaga

Deildu

Klukkan 12 í dag, þann 20. júní hófst atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning sem Starfsmannafélag Kópavogs ásamt tíu öðrum aðildarfélögum BSRB skrifuðu undir þann 13. júní sl. við Samband íslenskra sveitarfélag.

Hægt er að skrá sig á rafræna kynningarfundi hér

Atkvæðagreiðslan fer fram rafrænt og hefur borist félögum í tölvupósti og SMS

Kosningu lýkur þriðjudaginn 25. júní kl. 16:00

Gildistímar kjarasamnings er frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028. Samkvæmt samningnum þá hækka mánaðarlaun að lágmarki um 23.750 kr. og desemberuppbætur og orlofsuppbætur hækka.

Auk þess voru sérstakar greiðslur lægstu launa og á sérstök starfsheiti hjá sveitarfélögum hækkuð. 

Við hvetjum félagsfólk til að kynna sér kjarasamninginn sem og taka þátt í atkvæðagreiðslu.