Fara í efni
07.03.2024 Fréttir

Hver ber ábyrgð? Af umönnunarbili, fæðingarorlofi og tekjutapi

Deildu

Kvennagangan verður farin frá Arnarhóli og hefst klukkan 17:00.

Alþjóðlegur baráttudagur kvenna er á morgun 8. mars.

ASÍ, BHM, BSRB, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Kennarasamband Íslands, Kvenréttindafélag Íslands og Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja standa fyrir hádegisfundi í tilefni af Alþjóðlegum baráttudegi kvenna á Hilton Reykjavík Nordica, sal FG á 2. hæð kl. 11:30-13:00.

Yfirskrift fundarins er „Hver ber ábyrgð af umönnunarbili, fæðingarorlofi og tekjutapi?". Streymt verður frá fundinum á Zoom. Fundurinn fer fram á íslensku en rittúlkun verður á ensku. Streymt verður frá viðburðinum hér: https://livestream.com/accounts/5108236/events/11104125

Upptaka verður aðgengileg að fundi loknum.



Fundarstýra: Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM.

Fyrirlesarar:
Guðný Björk Eydal, prófessor í félagsráðjöf, flytur erindið: Fæðingarorlof - reynsla, þróun og framtíðarsýn.

Maya Staub, sérfræðingur hjá Vörðu - rannsóknastofnun vinnumarkaðarins. Erindi hennar ber yfirskriftina: Samræming fjölskyldu- og atvinnulífs barnafjölskyldna á Íslandi

Halldóra Guðmundsdóttir, varaformaður Félags stjórnenda leikskóla flytur erindi um samanburðartölur og stöðuna í leikskólamálum – virðing, peningar og fólk.

Að loknum erindum verða pallborðsumræður með Önnu Mariu Milosz - skrifstofufulltrúa hjá Reykjavíkurborg, Guðnýju Björk Eydal, prófessor í félagsráðgjöf, Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur, hagfræðingi hjá BSRB og Sveinlaugu Sigurðardóttur, varaformanni Félags leikskólakennara.

Þá stendur Kvenréttindafélag Íslands ásamt UN Women Ísland, Menningar- og friðarsamtökin MFÍK, Félagi Ísland-Palestína, Kvenfélagasamband Íslands, Stígamót, Sósíalískir femínistar, Jafnréttisskólinn GRÓ GEST, Kvennasögusafn Landsbókasafn Íslands, Feminísk fjármál, Samtökin 78, Samtök Hernaðarandstæðinga, Félagsráðgjafafélag Íslands og Efling stéttarfélag að kvennagöngu fyrir Palestínu á Alþjóðlegum baráttudegi kvenna.

Kvennagangan verður farin frá Arnarhóli og hefst klukkan 17:00.

Slagorð eða þema dagsins í ár á alþjóðlega vísu er „Innblástur til þátttöku“ með yfirskriftinni „Fjárfestu í konum, flýttu framförum.“ Með þessu eru vinnuveitendur hvattir til að eyða kynbundnum launamun en lögð er áhersla á mikilvægi þess að skapa samfélag án aðgreiningar og fjárfest sé í valdeflingu kvenna.

Women’s International Day 8 March

Who’s Responsible?
On the care gap, parental leave, and income loss
Hilton Reykjavík Nordica
8 March 2024, 11:30-13.00
2nd floor, Room FG, and streamed on Livestream: https://livestream.com/accounts/5108236/events/11104125

Vegan soup, bread, coffee, and tea will be served.
The meeting will take place in Icelandic, but will be interpreted to English. A recording will be available after the meeting.

Meeting moderator: Kolbrún Halldórsdóttir, Chair of BHM (Association of Academics)
Speakers:
● Guðný Björk Eydal, Professor of Social Work Parental Leave - Experience, Development, and Outlook
● Maya Staub, Specialist at Varða – Labour Market Research Institute Balancing Family and Work Life for Families with Children in Iceland.
● Halldóra Guðmundsdóttir, Vice Chair of the Association of Preschool Directors The Child Has Outgrown Its Clothes - The Icelandic Preschool System

Panel: Anna Maria Milosz - Office Representative at Reykjavík City, Guðný Björk Eydal - Professor of Social Work, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir - Economist with BSRB (Federation of Public Worker Unions), Sveinlaug Sigurðardóttir - Vice Chair of the Association of Preschool Directors.
The meeting is organised by: ASÍ (The Icelandic Confederation of Labour), BHM, BSRB, The Icelandic Nurses’ Association, Icelandic Teachers’ Union, Icelandic Women’s Rights Association, The Confederation of Icelandic Bank and Finance Employees.