Fara í efni
05.05.2022 Fréttir

Fæst sveitarfélög tryggja leikskólapláss fyrir 12 mánaða börn

Deildu

Fæst sveitarfélög tryggja börnum leikskólapláss þegar þau verða 12 mánaða, þ.e. eftir að hefðbundnu fæðingarorlofi lýkur. Þetta kemur fram í nýútgefinni skýrslu BSRB - heildarsamtaka stéttarfélaga starfsfólks í almannaþjónustu sem ætlað er að varpa ljósi á stöðu leikskólavistunar ungra barna á Íslandi og atvinnuþátttöku foreldra. Börn á Íslandi eru að meðaltali 17,5 mánaða gömul þegar þau komast inn á leikskóla samkvæmt niðurstöðum skýrslunnar en mikill munur er milli sveitarfélaga. Er þetta nokkur breyting til hins betra frá árinu 2017, þegar meðalaldur var 20 mánuðir.*

Hægt er að lesa meira um málið inn á heimasíðu BSRB Hér og um skýrslu BSRB um umönnunarbilið Hér