Fara í efni
03.05.2023 Fréttir

Árangurslaus fundur hjá ríkissáttasemjara

Deildu

2. maí 2023

Árangurslaus fundur hjá ríkissáttasemjara.

Ekki tókst að leysa þann hnút sem er á kjaraviðræðum BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga á fundi samninganefnda hjá ríkissáttasemjara í gær. Ekki hefur verið boðað til fleiri funda að svo stöddu.

Að óbreyttu hefjast verkföll í fjórum sveitarfélögum þann 15. maí svo knýja megi fram sanngjarna niðurstöðu, í Kópavogi, Garðabæ, Seltjarnarnes og Mosfellsbæ. Þá standa atkvæðagreiðslur yfir um frekari verkföll í sex sveitarfélögum til viðbótar; í Hafnafirði, Reykjanesbæ, Árborg, Ölfus, Hveragerði og Vestmannaeyjum. Kosningu lýkur á hádegi á fimmtudag 4. maí og verða niðurstöður kynntar í kjölfarið.

Sveitarfélögin hafa enn tækifæri til að sjá að sér áður en verkföll hefjast. Félagar í BSRB um allt land standa saman og standa keik í þessari baráttu enda erum við að verja grundvallarrétt launafólks um sömu laun fyrir sömu störf!

Verkfall félagsfólks SfK hefst 15. maí.