Fara í efni
15.11.2024 Fréttir

Ályktun Landsfundar stéttarfélaga starfsmanna sveitarfélaga innan BSRB

Deildu

Stéttarfélögin hvetja stjórnvöld til þess að horfa til félagslegs stöðugleika, ekki síður en þess efnahagslega, til að stuðla að stöðugleika í íslensku samfélagi. Nauðsynlegt er að forgangsraða í þágu uppbyggingar í velferðarkerfinu og hafna einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu. Mönnun opinberrar starfsemi ríkis og sveitarfélaga þarf að haldast í hendur við þær kröfur sem gerðar eru til þeirrar opinberu þjónustu sem íbúar krefjast að veitt sé.

Sveitarfélög þurfa að bjóða starfsfólki gott starfsumhverfi og fjárfesta í starfsþróun sem býr til betri starfsskilyrði og eykur starfsánægju. Til að bæta þjónustustig sveitarfélaga, krefst Landsfundur stéttarfélaga starfsmanna sveitarfélaga þess að löggjafinn tryggi að lagarammi í kringum fjármögun sveitarfélaga verði fullnægjandi.