Fara í efni
01.10.2024 Fréttir

Skrifstofa SfK er lokuð 2. - 4. október vegna 47. þings BSRB

Deildu

47. þing BSRB verður sett á Hilton Hótel Nordica miðvikudaginn 2. október klukkan 10. Þingið mun standa fram á föstudag og hafa 220 þingfulltrúar frá öllum aðildarfélögum rétt á að sitja þingið. Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, mun setja þingið með ávarpi. Að því loknu munu þau Sigurður Ingi Jóhannesson fjármálaráðherra, Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra og Finnbjörn Hermansson forseti ASÍ ávarpa þingið.

Þing BSRB eru haldin þriðja hvert ár og fara þau með æðsta vald í öllum málum bandalagsins. Þingið tekur til umfjöllunar öll þýðingarmikil málefni og mótar stefnu BSRB. Þá er kosið í helstu embætti bandalagsins á þingum þess en kosið verður um formann, varaformenn og stjórn bandalagsins á föstudaginn.

Dagskrá þingsins og aðrar upplýsingar má finna á þingvef BSRB

Vinsamlegast athugið að skrifstofa Starfsmannafélags Kópavogs verður lokuð dagana 2. til 4. október vegna þingsins. Við munum svara erindum sem berast á netfangið sfk@stkop.is eins fljótt og auðið er.