Starfsmannafélag Kópavogs tilkynnir hér með að kjör til stjórnar og nefnda félagsins fer fram á aðalfundi félagsins þann 19. mars 2026.
Samkvæmt lögum félagsins skal stjórn félagsins skipuð fimm félagsmönnum auk tveggja til vara. Stjórnarmenn skulu kosnir til tveggja ára í senn á aðalfundi.
Formann skal kjósa sérstaklega. Fjórir meðstjórnendur skulu kosnir til tveggja ára þannig að árlega gangi tveir úr stjórn á víxl. Tveir varamenn skulu kosnir til tveggja ára þannig að árlega gangi annar úr stjórn á víxl.
Stjórnin skiptir með sér verkum og kýs varaformann og ritara úr sínum hópi.
Orlofsnefnd er kosin til eins árs í senn.
Allar tillögur í stjórnir og nefndir Starfsmannafélags Kópavogs skulu vera skriflegar og berast í tölvupósti til SfK – sfk@stkop.is eigi síðar en 2 vikum fyrir aðalfund, eða til og með 4. mars 2026.
Tilnefningum skulu fylgja nafn viðkomandi, kennitala, starfsheiti, heimilisfang og heiti vinnustaðar þeirra sem tillagan er gerð um.
Tilnefningar sem berast eftir 4. mars teljast ógildar.
Ef frambjóðendur eru jafn margir stjórnarsætum, teljast þeir sjálfkjörnir.
Starfsmannafélag Kópavogs hvetur félagsfólk til að bjóða sig fram!
Félagsfólk getur kynnt sér uppstillingu og framboðslista á heimasíðu félagsins en listarnir verða uppfærðir um leið og ný framboð berast, smellið á hlekkinn hér fyrir neðan:
