Fara í efni
30.06.2026 Fréttir

Vorskýrsla Kjaratölfræðinefndar 2026 komin út

Deildu

Vorskýrsla Kjaratölfræðinefndar 2026 kom út í dag, 30. júní, og var kynnt á fundi í húsakynnum ríkissáttasemjara í morgun. Í skýrslunni er fjallað um þróun efnahags- og vinnumarkaðsmála, launa og kjarasamninga.

Þar kemur meðal annars fram að um helmingur yfirstandandi kjarasamningslotu er nú liðinn og að nærri 260 kjarasamningar hafi verið undirritaðir. Frá febrúar 2024 til janúar 2026 hækkaði grunntímakaup um 17,0% á almennum markaði, 14,8% hjá ríki, 13,8% hjá Reykjavíkurborg og 15,3% hjá sveitarfélögum utan Reykjavíkur.

Á sama tímabili jókst kaupmáttur grunntímakaups um 7,8% á almennum vinnumarkaði, 5,7% hjá ríki, 4,8% hjá Reykjavíkurborg og 6,1% hjá sveitarfélögum utan Reykjavíkur.

Vorskýrsluna, fylgigögn og upptöku af kynningu skýrslunnar má nálgast á vef Kjaratölfræðinefndar