Fyrsti fundur vinnuhóps sem vinnur að fullgildingu ILO-samþykktar nr. 190 um ofbeldi og áreitni fór fram í gær. Hópurinn, sem félagsmálaráðherra skipaði, samanstendur af fulltrúum stjórnvalda, atvinnurekenda og launafólks, en Dagný Aradóttir Pind tekur þátt í starfinu fyrir hönd BSRB. Dr. María Rún Bjarnadóttir gegnir formennsku í hópnum.
Samþykktin er sú fyrsta sinnar tegundar á alþjóðavísu og leggur áherslu á að tryggja öllum öruggt og heilbrigt vinnuumhverfi án ofbeldis og áreitni. Hún tekur jafnframt til áhrifa ofbeldis í nánum samböndum á atvinnulíf og kallar meðal annars á aukna vernd og stuðning við þolendur.
BSRB hefur um árabil lagt áherslu á mikilvægi þess að Ísland fullgildi samþykktina og telur að hún verði mikilvægt skref í átt að réttlátara og öruggara vinnuumhverfi fyrir allt launafólk.
Nánar má lesa um málið á heimasíðu BSRB í hlekknum hér fyrir neðan:
