Fara í efni
27.03.2026 Fréttir

Viltu áminna yfirvöld fyrir samráðsleysi og fyrirhugað afnám áminningarskyldu?

Deildu

Viltu áminna yfirvöld fyrir samráðsleysi og fyrirhugað afnám áminningarskyldu?

Ríkisstjórn Íslands ætlar að ráðast í eina stærstu réttindaskerðingu sögunnar á íslenskum vinnumarkaði — að afnema áminningarskyldu.  Það myndi minnka starfsöryggi allra ríkisstarfsmanna. Þessa réttindaskerðingu setja stjórnvöld svo fram sem eins konar mannauðsstjórnunarmál til hagsmuna fyrir starfsfólk í stað þess að grípa til aðgerða til að bæta starfsumhverfið. Með því að afnema áminningarskyldu aukast verulega líkur á óréttlátum, ósanngjörnum og tilhæfulausum uppsögnum.

Á hlekknum hér fyrir neðan er hægt að senda inn áminningu á yfirvöld fyrir samráðsleysi og fyrirhugað afnám áminninigarskyldu. 

Hægt er að senda persónulega inn umsögn til efnahags- og viðskiptanefndar ef farið er í gegnum hlekkinn hér í fyrstu athugasemd og skrunað neðst á síðunni. Hægt er að senda inn staðlaðan texta eða breytt honum hvernig sem þér hugnast. Fólk er hvatt til að bæta við persónulegum athugasemdum og segja til dæmis frá starfi sínu og hvaða áhrif breytingin myndi hafa á þitt starf. Einnig er hvatt til að segja frá því hvaða skilaboð þú upplifir að ríkisstjórnin sé að senda með þessum áformum.

Til að senda inn áminningu á yfirvöld er smellt á þennan hnapp sem flytur þig á síðu herferðarinnar Góð áminning og þar neðst á síðunni er áminningarglugginn: