Fara í efni
04.09.2026 Fréttir

Vel heppnað trúnaðarmannamálþing BSRB

Deildu

 

Trúnaðarmenn SfK sóttu í gær, þann 3. september, málþing trúnaðarmanna BSRB sem haldið var á Hilton Nordica. Dagskráin var fjölbreytt og sneri að ýmsum þeim málum sem trúnaðarmenn mæta í störfum sínum og eru ofarlega á baugi á vinnumarkaði.

Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, bauð þátttakendur velkomna og Karl Rúnar Þórsson, formaður fræðslunefndar BSRB, ávarpaði hópinn. Einnig deildu trúnaðarmenn reynslu sinni af starfinu.

Fyrri hluta dags voru málstofur þar sem meðal annars var fjallað um áhrif gervigreindar á vinnumarkaðinn, lestur og túlkun kjarasamninga og hvernig byggja megi upp góða vinnustaðamenningu.

Eftir hádegi voru þrjú erindi þar sem Bjarndís Helga Tómasdóttir formaður Samtakanna ´78 fjallaði um hinseginleika og vinnumarkaðinn, Þóra Bjarnadóttir lögfræðingur hjá Minjastofnun Íslands um óvægna umræðu um opinbert starfsfólk og Þorkatla Aðalsteinsdóttir sálfræðingur um sálfélagslegt öryggi trúnaðarmanna.

Dagurinn hélt síðan áfram með vinnustofum og hópavinnu um gervigreind, kjarasamninga og vinnustaðamenningu.

Málþingið var góður vettvangur fyrir fræðslu, samtal og miðlun reynslu milli trúnaðarmanna og gaf þátttakendum tækifæri til að ræða þau fjölbreyttu verkefni og áskoranir sem fylgja trúnaðarmannastarfinu. 

Við þökkum BSRB fyrir fróðlegan og vel heppnaðan dag og trúnaðarmönnum SfK fyrir góða þátttöku.

Hér má sjá myndir af málþinginu:

Ath. til gamans má nefna var gervigreind notuð til að skeyta einum trúnaðarmanni SfK við hópmyndatökuna, með góðfúslegu leyfi.