Fara í efni
25.03.2026 Fréttir

Vel heppnað súrdeigsnámskeið

Deildu

Í gær var haldið súrdeigsnámskeið fyrir félagsfólk Starfsmannafélags Kópavogs (SfK) þar sem Ragnheiður Maísól Sturludóttir leiddi þátttakendur inn í heim súrdeigsbaksturs.

Á námskeiðinu var farið yfir helstu grunnatriði baksturs með súrdeigi, meðal annars hvernig viðhalda á súrdeigsmóður, hvaða tæki og tól nýtast best og hvernig hægt er að baka einfalt og bragðgott brauð heima við. Þá var einnig fjallað um fjölbreytileika súrdeigsbaksturs og mismunandi leiðir til að nýta deigið í ýmsar uppskriftir.

Þátttakendur fengu að kynnast helstu handtökunum í gegnum leiðsögn Ragnheiðar og að smiðjunni lokinni gátu þeir sem vildu fengið með sér afleggjara af súrdeigsmóður ásamt uppskriftum til að hefja eigin bakstur heima.

Ragnheiður Maísól er þjóðfræðingur og listakona með yfir áratugar reynslu af súrdeigsbakstri. Hún hefur miðlað þekkingu sinni víða, meðal annars í gegnum námskeið og samfélagsmiðla, og gerði nýverið sex þátta útvarpsseríu um súrdeigsmæður á Rás 1.

Námskeiðið var afar vel heppnað og rík ánægja meðal þátttakenda með bæði fræðsluna og stemninguna eins og sjá má af myndum hér fyrir neðan: