Fara í efni
10.09.2026 Fréttir

Uppskeruhátíð - Sveitarfélag ársins 2026

Deildu

Uppskeruhátíð könnunarinnar Sveitarfélag ársins 2026 verður haldin á Hótel Selfossi fimmtudaginn 15. október kl. 14:00.

Könnunin mælir meðal annars starfsánægju, líðan, stjórnun, starfsanda og aðbúnað starfsfólks hjá sveitarfélögum og gefur mikilvæga innsýn í upplifun starfsfólks af sínum vinnustað.

Á hátíðinni verða niðurstöður ársins kynntar og tilkynnt hvaða sveitarfélag hlýtur nafnbótina Sveitarfélag ársins 2026.

Viðburðurinn verður einnig í beinu streymi fyrir þau sem ekki komast á staðinn. 💛