Í morgun, miðvikudaginn þann 29. apríl, var haldinn annar trúnaðarfundur ársins.
Hrannar Már Gunnarsson, lögfræðingur BSRB kom í hús og fór yfir áform stjórnvalda um afnám áminningarskyldunnar út lögum. Hlutverk BSRB og verkefni stéttarfélaga voru rædd en einnig var farið yfir almenn atriði varðandi réttindi og skyldur; um ráðningu í starf, breytingar á störfum, meginreglur stjórnsýsluréttar og starfslok.
Eftir líflegar spurningar úr sal varðandi réttindi og skyldur tók Marta Ólöf Jónsdóttir, formaður SfK, við og snerti á ýmsum þáttum. Svo sem könnun um Sveitarfélag ársins, um afmarkaða þætti kjarasamnings út frá spurningum trúnaðarmanna af sínum vinnustöðum sem og kröfugöngu 1. maí n.k. sem trúnaðarmenn voru hvattir til að fjölmenna í.
Góð mæting var á fundinn og umræður kröftugar að venju í þessum frábæra hópi trúnaðarmanna SfK!






