Fara í efni
30.09.2026 Fréttir

TR - Almannatryggingar 90 ára

Deildu

 Fulltrúar Starfsmannafélags Kópavogs sóttu 30. september afmælisráðstefnu almannatrygginga í Hörpu, sem haldin var í tilefni af 90 ára afmæli almannatrygginga á Íslandi. Yfirskrift ráðstefnunnar var Saga, þróun og framtíð og beindi sjónum að þróun íslenska velferðarkerfisins, stöðu þess í dag og þeim áskorunum sem fram undan eru.

Á ráðstefnunni komu saman fulltrúar stjórnvalda, opinberra stofnana, verkalýðshreyfingarinnar, lífeyrissjóða, atvinnulífs, fræðasamfélags og hagsmunasamtaka, auk erlendra sérfræðinga.

 Sameiginlegt öryggisnet samfélagsins

Ráðstefnan hófst með ávörpum Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Ölmu Möller, heilbrigðismálaráðherra.

Ragnar Þór rifjaði meðal annars upp að almannatryggingar hefðu orðið til á tímum þegar Ísland taldi um 100 þúsund íbúa og samfélagið glímdi við mikla fátækt, atvinnuleysi og afleiðingar kreppu. Hann lagði áherslu á að hlutverk almannatrygginga væri enn hið sama í grunninn: að tryggja sameiginlegt öryggisnet fyrir fólk þegar veikindi, slys, örorka eða aldur breyta lífsaðstæðum þess.

Alma Möller vísaði til umræðna frá upphafi almannatrygginga um að samfélagið þyrfti sameiginlega að bera kostnað vegna veikinda og áfalla. Hún lagði áherslu á að öflugt velferðarkerfi væri mikilvægt tæki til að draga úr fátækt og ójöfnuði og standa vörð um heilsu og lífsgæði fólks.

 Stjórnsýslan og hagaðilar

Huld Magnúsdóttir, forstjóri Tryggingastofnunar, fór í erindi sínu Var, Er, Mögulega verður yfir þróun almannatrygginga frá árinu 1936 til dagsins í dag.

Hún benti á að fáar stofnanir kæmu að jafn mörgum tímamótum í lífi fólks og Tryggingastofnun. Um 86 þúsund einstaklingar fá greiðslur frá stofnuninni, samtals um 250 milljarða króna, og á bak við hverja umsókn og ákvörðun er einstaklingur eða fjölskylda á ákveðnu skeiði lífsins.

Meðal helstu áskorana framtíðar nefndi hún öldrun þjóðarinnar, lækkandi fæðingartíðni, geðheilsu, fjölþjóðlegt samfélag, tæknibreytingar og gervigreind. Jafnframt væri mikilvægt að skapa sveigjanlegri leiðir fyrir fólk til þátttöku á vinnumarkaði og tryggja að þjónustan þróaðist áfram með samfélaginu.

Sigurður Helgi Helgason, forstjóri Sjúkratrygginga, fjallaði í erindinu Frá öllum til allra um þá grundvallarhugmynd að almannatryggingar byggist á samstöðu samfélagsins.

Hann benti á að hugsjónin hefði oft verið skrefi á undan kerfinu sjálfu. Það tók til dæmis áratugi að tryggja öllum landsmönnum aðgang að sjúkratryggingum. Þær sömu grundvallarspurningar væru þó enn til staðar: hvernig tryggjum við gott aðgengi, hvernig nýtum við sameiginlega fjármuni og hvernig tryggjum við fólki þjónustu þegar það þarf á henni að halda?

Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, fór í erindinu Ein stofnun – fjölbreytt hlutverk yfir þróun stofnunarinnar og þær breytingar sem orðið hafa á vinnumarkaði.

Meðal helstu verkefna fram undan eru að draga úr langtímaatvinnuleysi, efla stuðning við fólk með skerta starfsgetu, styðja innflytjendur og flóttafólk inn á vinnumarkaðinn og þróa þjónustu og upplýsingakerfi áfram.

Í pallborðsumræðum undir yfirskriftinni Samstarf, þjónusta við notendur og framtíðarsýn velferðarkerfisins komu fram ýmis sjónarmið sem tengjast beint hagsmunum launafólks.

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, framkvæmdastjóri BSRB, lagði áherslu á að samábyrgð samfélagsins væri grundvöllur almannatryggingakerfisins og að tryggja þyrfti fólki grunnframfærslu. Hún sagði BSRB nú beina sjónum sérstaklega að vinnuheilsu og lýsti áhyggjum af því hversu margar konur falla af vinnumarkaði, meðal annars vegna ósveigjanlegs vinnumarkaðar og álags í störfum. Mikilvægt væri að skapa aðstæður þar sem fólk gæti haldist á vinnumarkaði út starfsævina. 
Hún gagnrýndi jafnframt að grundvallarbreytingar hefðu verið gerðar á atvinnuleysistryggingum án samráðs við stéttarfélögin og sagði slíkt grafa undan samtryggingunni. Hún benti á að BSRB væri að stórum hluta fulltrúi kvenna í opinberri þjónustu, meðal annars í menntun, umönnun og þjónustustörfum, og að umræðan um velferðarkerfið snerist of oft um kostnað en síður um gæði þjónustunnar og afleiðingar útvistunar. Einnig væri kerfið orðið svo flókið að bæði notendur og starfsfólk ættu erfitt með að átta sig á hvert ætti að leita eftir þjónustu.

Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ réttindasamtaka, ræddi meðal annars um hversu flókið kerfið getur reynst fólki sem þegar glímir við veikindi eða erfiðar aðstæður. Aðgengi að upplýsingum og réttindum þurfi að vera einfalt og skýrt og tryggja þurfi fólki framfærslu sem gerir því kleift að lifa með reisn.

Sama stef kom fram í máli annarra þátttakenda: notendur þurfa skýrari leiðir í gegnum kerfið, betri samhæfingu milli stofnana og þjónustu sem tekur meira mið af raunverulegum aðstæðum fólks.

 Aðkoma og samspil atvinnulífs, lífeyrissjóða, stéttarfélaga og fræðasamfélags

Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, kynnti hugmyndir að sérstökum örorkubótasjóði sem gæti tekið við sameiginlegri ábyrgð á greiðslum vegna skertrar starfsgetu.

Markmiðið væri meðal annars að jafna örorkubyrði milli lífeyrissjóða, einfalda kerfið og draga úr því misræmi sem myndast þegar ákveðnir sjóðir bera mun meiri örorkubyrði en aðrir.

Þórey S. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, fór yfir samspil lífeyrissjóða og almannatrygginga. Hún benti á að eignir íslenska lífeyrissjóðakerfisins næmu um 9.000 milljörðum króna og að íslenska kerfið stæði mjög sterkt í alþjóðlegum samanburði.

Hún tók þó undir að misjöfn örorkubyrði sjóða skapaði óréttlæti sem þyrfti að leysa.

Finnbjörn Hermannsson, forseti ASÍ, minnti á að saga almannatrygginga væri órjúfanlega tengd sögu verkalýðshreyfingarinnar. Stéttarfélög hefðu frá upphafi byggt upp sjúkra- og styrktarsjóði og barist fyrir félagslegu öryggi launafólks. Hann lagði áherslu á að auðugt samfélag ætti ekki að sætta sig við fátækt.

Sérstaka athygli vakti erindi Guðmundar Gunnarssonar, sviðsstjóra örorkusviðs Tryggingarstofnunar um rannsókn á reynslu og aðstæðum kvenna sem fá örorkulífeyri. Þar kom meðal annars fram að ein af hverjum fjórum konum um sextugt er á örorkulífeyri. Stoðkerfisvandamál voru algengasta ástæðan sem konurnar sjálfar nefndu og stór hluti þeirra hafði starfað í heilbrigðis- og félagsþjónustu.

Rannsóknin sýndi einnig að margar konurnar höfðu árum saman borið mikla ábyrgð á umönnun barna og fjölskyldu samhliða störfum, auk þess sem reynsla af líkamlegu og andlegu ofbeldi og einelti var algengari í hópnum en meðal samanburðarhóps. Niðurstöðurnar vekja mikilvægar spurningar um vinnuumhverfi, starfsálag, umönnunarbyrði og hvaða aðgerðir geti komið í veg fyrir að fólk falli af vinnumarkaði áður en starfsævinni lýkur.

 Staðan í alþjóðlegu samhengi – Reynsla, þekking og framtíð almannatrygginga

Eftir hádegi var sjónum beint að alþjóðlegri þróun.

Valerie Frey hjá OECD fjallaði um helstu áskoranir velferðarkerfa næstu áratuga, meðal annars öldrun þjóðarinnar, fækkun barna, breytta heimilissamsetningu, tæknibreytingar og loftslagsbreytingar.

Hún lagði áherslu á að til að verja velferðarkerfin þyrfti meðal annars að gera fólki kleift að vera lengur á vinnumarkaði, tryggja foreldrum og konum raunveruleg tækifæri til atvinnuþátttöku og endurskoða hvernig velferðarkerfi eru fjármögnuð.

Jens Schremmer hjá Alþjóðasamtökum almannatryggingastofnana, ISSA, sagði félagslegt öryggi vera mannréttindi og almannatryggingar fjárfestingu í fólki, mannlegri reisn og seiglu samfélaga.

Hann lagði sérstaka áherslu á að nýta tækni og gervigreind til að bæta þjónustu, án þess að tapa mannlega þættinum. Fólkið sjálft þurfi að vera í miðju kerfisins og þjónustan byggð upp út frá þörfum þess.

Dr. Maja Miljanic Brinkworth, rannsóknaráðgjafi hjá fjölskyldu- og félagsmálaráðuneyti Möltu, sýndi síðan með dæmum hvernig breytingar á bótakerfum, leikskólaþjónustu og lífeyriskerfi geta haft bein áhrif á þátttöku fólks á vinnumarkaði og sérstaklega stöðu kvenna.

Ráðstefnan gaf góða mynd af því hversu víðtækt hlutverk almannatrygginga er í íslensku samfélagi og sameiginlegur þráður dagsins var að kerfið þarf stöðugt að þróast með samfélaginu. Mikilvægt er að tryggja að fólk geti haldist á vinnumarkaði eins lengi og aðstæður leyfa, að stuðningur sé aðgengilegur þegar á þarf að halda og að velferðarkerfið haldi áfram að byggjast á samstöðu og sameiginlegri ábyrgð.

Við þökkum fyrir okkur og til hamingju með 90 ára afmælið! 

Almannatryggingar 90 ára