Þann 7. ágúst var undirrituð söguleg viljayfirlýsing um aukið samstarf í þágu jafnréttis, fjölbreytileika og inngildingar á íslenskum vinnumarkaði. Að samkomulaginu standa stjórnvöld, heildarsamtök launafólks og atvinnurekenda ásamt Samtökunum ’78.
Fyrir hönd BSRB undirritaði Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, viljayfirlýsinguna. SfK fagnar þessu mikilvæga skrefi, enda skiptir miklu máli að allt starfsfólk geti notið virðingar, öryggis og jafnra tækifæra á vinnumarkaði.
Markmið samstarfsins er að bæta stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði og vinna markvisst gegn mismunun, fordómum og útilokun. Rannsóknir hafa sýnt að hinsegin fólk, og þá sérstaklega trans og kynsegin fólk, upplifir enn í auknum mæli verri líðan, fordóma og mismunun í starfsumhverfi sínu.
Sem hluti af samstarfinu verður stofnaður aðgerðahópur sem mun vinna að fræðsluefni, rannsóknum og aðgerðum sem styðja við öruggara og inngildandi starfsumhverfi.
Undirritendur viljayfirlýsingarinnar eru:
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra
Steinunn Valdís Óskarsdóttir, fyrir hönd dómsmálaráðherra
Bjarndís Helga Tómasdóttir, formaður Samtakanna ’78
Finnbjörn Hermannsson, forseti Alþýðusambands Íslands
Jón Ólafur Halldórsson, formaður Samtaka atvinnulífsins
Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands
Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB
