Auglýsing sem birtist í Morgunblaðinu í dag hefur vakið töluverð viðbrögð. Í henni er sett fram sviðsmynd þar sem ráðherra er sjálfur látinn sæta uppsögn án fyrirvara, án áminningar og án tækifæris til úrbóta – í samræmi við þær breytingar sem nú eru lagðar til á réttindum ríkisstarfsmanna.
Þegar reglur sem annars eiga að gilda um aðra snúa skyndilega að manni sjálfum verða áhrifin skýrari. Daði Már segir: „Það var nokkuð áfall yfir kaffinu í morgun að lesa uppsagnarbréfið“ og gagnrýnir innihald uppsagnarbréfsins á kaldhæðinn hátt. Hann saup því hveljur yfir morgunkaffinu yfir því sem íslenskt launafólk mun standa frammi fyrir, nái réttindaskerðingin sem Daði og ríkisstjórnin stendur fyrir, að verða að veruleika.
Áminningarskylda snýst ekki um að hindra uppsagnir heldur að tryggja sanngirni, faglega málsmeðferð og tækifæri til úrbóta. Hún er grundvallarvernd sem dregur úr hættu á geðþóttaákvörðunum og stuðlar að trausti á vinnumarkaði.
Að auglýsingunni standa BSRB, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Kennarasamband Íslands, sem með henni vilja vekja athygli á mikilvægi þess að standa vörð um réttindi launafólks.
Starfsmannafélag Kópavogs hvetur alla til að kynna sér málið á Góð áminning
