Fara í efni
22.09.2026 Fréttir

Stóri fræðsludagur trúnaðarmanna var haldinn 22. september 2026

Deildu

Trúnaðarmenn SfK komu saman í Kríunesi þar sem dagskráin var fjölbreytt og sneri meðal annars að vinnuheilsu, kjarasamningum, stöðu á vinnustöðum, orlofsmálum og vellíðan.

Vinnuheilsa og snemmtæk viðbrögð

Fræðslufulltrúarnir Fríða og Ingibjörg frá VIRK starfsendurhæfingarsjóði hóf fræðsludagskrána með erindi um vinnuheilsu, forvarnir og mikilvægi þess að bregðast snemma við þegar starfsfólk finnur fyrir auknu álagi eða skertri starfsgetu.

Fjallað var um hvað vinnustaðir geta gert til að styðja betur við starfsfólk, hvernig hægt er að skapa aðstæður sem stuðla að góðri heilsu og hversu mikilvægt er að grípa inn í áður en vandinn verður að langvarandi veikindafjarveru.

Á heimasíðu Velvirk má finna ótal verkfæri og fróðleik til að taka stöðuna á eigin heilsufari.

Kjarasamningar og réttindi félagsfólks

Marta Ólöf Jónsdóttir formaður SfK fór því næst yfir ýmis atriði sem tengjast kjarasamningum og réttindum félagsfólks SfK og svaraði ýmsum spurningum.

Púlsinn tekinn á vinnustöðunum

Í framhaldi tóku trúnaðarmenn þátt í hópavinnu þar sem fólk frá sambærilegum vinnustöðum var parað saman. Markmiðið var að taka púlsinn á vinnustöðunum og skoða hvað gengur vel, hvar áskoranirnar liggja og hvað mætti bæta.

Rætt var meðal annars um vinnuálag, mönnun, samskipti, vinnustaðamenningu, vinnuheilsu, verkaskiptingu og hvernig brugðist er við þegar starfsfólk sýnir merki um of mikið álag. Hóparnir ræddu jafnframt hvaða mál rata helst inn á borð trúnaðarmanna og hvað SfK getur gert til að styðja þá enn betur í sínu hlutverki.

Orlofskostir SfK

Málfríður Anna Gunnlaugsdóttir þjónustufulltrúi SfK fór þvínæst yfir orlofskosti félagsins og þau fjölbreyttu valkosti sem standa félagsfólki til boða.

Tíu ráð til að vera óhamingjusamur

Dagurinn endaði síðan á léttari nótum með erindi Ingrid Kuhlman frá Þekkingarmiðlun, „10 ráð til að vera óhamingjusamur“.

Með húmor og öfugri nálgun var sjónum beint að ýmsum hugsana- og hegðunarmynstrum sem geta dregið úr vellíðan okkar. Erindið gaf þátttakendum tækifæri til að staldra við, skoða eigin venjur og velta fyrir sér hvað við getum sjálf gert til að hafa jákvæð áhrif á líðan okkar og samskipti við aðra.

Trúnaðarmannadagurinn í Kríunesi var þannig bæði fræðandi og skemmtilegur og skapaði mikilvægan vettvang fyrir trúnaðarmenn SfK og félagið.