Fara í efni
24.06.2026 Fréttir

Sólmyrkvagleraugu í boði fyrir félagsfólk SfK

Deildu

Þann 12. ágúst 2026 verður stórkostlegur sólmyrkvi sýnilegur frá Íslandi og víða um land má búast við afar áhrifamikilli upplifun. 

Til að fylgjast með sólmyrkvanum á öruggan hátt þarf að nota sérstök sólmyrkvagleraugu allan tímann nema innan almyrkvaslóðarinnar á þeim örfáu mínútum sem almyrkvi stendur yfir. Venjuleg sólgleraugu veita enga vörn gegn skaðlegri geislun sólar.

SfK hefur keypt sólmyrkvagleraugu fyrir félagsfólk sitt sem hægt er að nálgast endurgjaldslaust á skrifstofu félagsins í Bæjarlind á opnunartíma. Með kaupunum styður félagið jafnframt við fræðslu- og kynningarstarf á sviði stjörnufræði á Íslandi.

Félagsfólk getur sótt gleraugun til og með 3. júlí. Eftir sumarleyfi verður skrifstofan opnuð á ný þann 4. ágúst og þá verður einnig hægt að nálgast gleraugu á meðan birgðir endast fram að sólmyrkva 12. ágúst.

Við hvetjum félagsfólk til að upplifa einn merkilegasta náttúruviðburð sem sést frá Íslandi á þessari öld – á öruggan hátt.

Hægt er að lesa meir um sólmyrkvann hér