Fara í efni
16.06.2026 Fréttir

Orlofshús við Eiðavatn laust um helgina og næstu tvær vikur

Deildu

🏡 Laust í orlofshúsinu við Eiðavatn næstu tvær vikurnar.

Langar þig í rólega sumardvöl í fallegu umhverfi? Orlofshúsið Eiðar við Eiðavatn er laust til leigu:

📅 19.–26. júní
📅 26. júní–3. júlí

Eiðar er notalegt 54 fm sumarhús með tveimur svefnherbergjum, svefnsófa í stofu og svefnplássi fyrir allt að sex gesti. Húsið er vel búið með uppþvottavél, örbylgjuofni, bakaraofni og rúmgóðri verönd með heitum potti, gasgrilli og stórkostlegu útsýni yfir Eiðavatn.

Gestir hafa einnig aðgang að bátnum Kópi og mega veiða í vatninu. Þetta er tilvalinn staður fyrir þá sem vilja njóta kyrrðar, náttúru og útivistar í einstöku umhverfi.

🌿 Nánari upplýsingar og bókanir á orlofssíðu félagsins - fyrstur kemur, fyrstur fær!