Fara í efni
19.01.2026 Fréttir

Orlofsblað 2026 er komið út

Deildu

Nýtt og glæsilegt Orlofsblað 2026 er nú komið út. 

Í blaðinu má finna ítarlegar upplýsingar um allt sem tengist orlofsmálum á komandi ári, þar á meðal yfirlit yfir orlofskosti félagsins, lýsingar á orlofshúsum og þeim fríðindum sem fylgja, upplýsingar um leiguverð og bókunartímabil, ásamt skýrum leiðbeiningum um umsóknarferli og úthlutunarreglur. Einnig eru í blaðinu gagnlegar ábendingar um aðra orlofskosti svo sem útilegukort, veiðikort, gjafakort Icelandair og Orlof að eigin vali. 

Að venju er lögð áhersla á að gera efnið aðgengilegt og hagnýtt svo félagsmenn geti auðveldlega skipulagt orlof sitt fram í tímann og notið þess sem félagið býður upp á.