Þann 30. janúar verður opnað fyrir rafrænar umsóknir vegna orlofshúsa fyrir tímabilið Páskar 2026. Um vikudvöl er að ræða og punktafrádráttur 20 punktar.
Hægt er að senda inn umsókn til og með 13. febrúar 2026.
Ekki skiptir máli hvenær á umsóknartímabilinu frá 30. janúar til 13. febrúar sótt er um.
SÆKJA ÞARF UM Í SÍÐASTA LAGI 13. FEBRÚAR 2026 Á ORLOFSVEFNUM
Félagsfólk getur sótt um fyrsta og annan valkost.
Leigutímabil er eftirfarandi:
Páskavika: 1. – 8. apríl 2026
Umsóknartímabil er eftirfarandi:
Umsóknartímabil hefst: 30. janúar 2026
Umsóknartímabili lýkur: 13. febrúar 2026
Úthlutun fer fram: 17. febrúar 2026
Greiðslufrestur er til og með: 24. febrúar 2026
Opnað fyrir bókanir virkra félaga: 26. febrúar 2026
