Meirihluti launafólks innan ASÍ og BSRB á eða hefur aðgang að bíl, en bílaeign er síður algeng á tekjulægri heimilum. Um fimmtungur bílaeigenda er á rafmagnsbíl og eru þeir mun algengari meðal tekjuhærri hópa. Horfur til næstu ára benda til þess að tekjuhærra fólk telji líklegra að skipta yfir í rafbíla, en helstu hindranir eru verð og skortur á áhuga.
Viðhorf til annarra samgöngumáta en einkabíls eru skipt: um 40% eru jákvæð en þriðjungur neikvæður. Langur ferðatími er helsta ástæða neikvæðni, auk ófullnægjandi leiðakerfis og áreiðanleika almenningssamgangna. Kostnaður við almenningssamgöngur vegur einnig þungt, sérstaklega hjá innflytjendum og tekjulágum hópum.
Þeir sem eru jákvæðir gagnvart öðrum samgöngumáta nefna helst háan kostnað við rekstur bíla, auk mengunar og streitu í umferð. Konur og yngra fólk eru líklegri til að líta til umhverfisþátta.
Niðurstöðurnar byggja á árlegri könnun Varða – Rannsóknastofnun vinnumarkaðarins meðal tæplega 25.000 félagsmanna ASÍ og BSRB. Hægt er að lesa skýrsluna hér:
