Taktu þátt í könnun um stöðu launafólks á Íslandi
Það tekur um 15 mínútur að svara og öll sem taka þátt eiga möguleika á að vinna 40.000 króna gjafakort.
Könnunin er á vegum Vörðu – Rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins og er nú lögð fyrir sjötta árið í röð. Niðurstöðurnar veita mikilvægar upplýsingar um stöðu launafólks, meðal annars um fjárhag, heilsu, starfsaðstæður og húsnæði. Þær eru nauðsynlegar verkalýðshreyfingunni í baráttunni fyrir betri kjörum og lífsskilyrðum.
Gott að vita:
- Könnunin er á þremur tungumálum, íslensku, ensku og pólsku
- Þrír þátttakendur vinna 40.000 kr. gjafakort
- Könnunin er ópersónurekjanleg. Happdrætti sem þátttakendum gefst kostur á að taka þátt í er á öðrum hlekk og ekki hægt að rekja saman svör í könnuninni við þátttöku í happdrættinu
Þátttaka þín skiptir máli. Því fleiri sem svara, því skýrari mynd fæst af stöðu launafólks og þeim áskorunum sem það stendur frammi fyrir.
