Í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna stóðu ASÍ, BSRB, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Kennarasamband Íslands fyrir morgunverðarfundi um tengsl ofbeldis í nánum samböndum og vinnumarkaðarins. Fundurinn fór fram á Hilton Reykjavík Nordica.
Á fundinum var fjallað um eðli og birtingarmyndir ofbeldis í nánum samböndum og hversu mikilvægt er að vinnumarkaðurinn beini sjónum sínum að málefninu. Þrátt fyrir aukna umræðu um kynbundið ofbeldi hefur tengingin við vinnumarkaðinn fengið tiltölulega litla athygli hér á landi.
Mikilvæg tenging við vinnumarkaðinn
Í erindum kom fram að vinnustaðurinn getur skipt miklu máli fyrir þolendur ofbeldis. Fyrir marga er vinnustaðurinn mikilvæg tenging við samfélagið og getur veitt stuðning, sveigjanleika og öryggi á erfiðum tíma.
Vinnustaðir geta meðal annars:
- upplýst starfsfólk um réttindi sín
- sent skýr skilaboð um að ofbeldi sé ekki liðið
- dregið úr afkomuótta og kvíða
- stutt starfsfólk sem þarf að bregðast við erfiðum aðstæðum heima fyrir.
- Alþjóðleg þróun og réttindi
Einnig var fjallað um alþjóðlega þróun í réttindum þolenda á vinnumarkaði. Þar má nefna ILO-samþykkt nr. 190 um ofbeldi og áreitni í atvinnulífinu, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga sem miða að því að styrkja vernd starfsfólks.
Í mörgum löndum hafa verið tekin upp úrræði eins og:
- vernd gegn uppsögnum og mismunun
- sveigjanleiki í vinnu eða hlutastarf
- launað leyfi vegna ofbeldis í nánum samböndum
- fjárhagslegur stuðningur eða önnur öryggisúrræði.
Slík úrræði geta skipt sköpum fyrir þolendur og hjálpað þeim að halda tengslum við vinnumarkaðinn á meðan þeir vinna úr aðstæðum sínum.
Fræðsla og hlutverk vinnustaða og stéttarfélaga
Á fundinum var einnig lögð áhersla á mikilvægi fræðslu innan vinnustaða og frá stéttarfélagögum. Með aukinni fræðslu geta stjórnendur og samstarfsfólk lært að þekkja merki ofbeldis og vita hvernig best er að styðja við þolendur.
Rannsóknir benda til að stuðningur á vinnustað geti hjálpað fólki að:
- halda vinnu sinni
- tryggja öryggi sitt og barna sinna
- leita sér aðstoðar og komast úr ofbeldissamböndum.
Erindi á fundinum héldu:
Linda Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins
Dagný Aradóttir Pind, lögfræðingur hjá BSRB
Að erindum loknum fóru þær í pallborð ásamt Adriönu Karolinu Pétursdóttur, formanni Mannauðs og framkvæmdastjóra mannauðs hjá Rio Tinto á Íslandi.
Fundarstjóri var Jenný Kristín Valberg, teymisstýra í Bjarkarhlíð.
Hægt er að horfa á upptöku af fundinum hér:






