BSRB tók þátt í mótun fyrstu heildstæðu stefnu stjórnvalda gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði. Stefnunni fylgir aðgerðaáætlun með 13 aðgerðum og er hún afrakstur samstarfs stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins.
Brotastarfsemi á vinnumarkaði felur í sér kerfisbundin lögbrot í fjárhagslegum tilgangi sem misnota launafólk eða rýra samkeppni, svo sem félagsleg undirboð, ólöglegar ráðningar, launagreiðslur utan bókhalds, misnotkun dvalar- og atvinnuleyfa, mansal og alvarleg brot gegn öryggi og réttindum starfsfólks.
Stefnan gildir 2026–2028 og byggir á fimm meginmarkmiðum: auknu samstarfi stjórnvalda, bættri gagnaöflun og miðlun, vandaðri útgáfu leyfa, skilvirkari viðurlögum og aukinni fræðslu um réttindi og skyldur á vinnumarkaði. Undir hverju markmiði eru skilgreind verkefni sem ætlað er að sporna gegn brotastarfsemi á íslenskum vinnumarkaði.
Hér má lesa nánar um frétt BSRB, stefnuna í heild sinni og aðgerðaráætlun stjórnvalda:
