Fara í efni
21.09.2026 Fréttir

Lokadagur Landsfundar bæjarstarfsmannafélaga í Vestmannaeyjum

Deildu

Þriðji og síðasti dagur Landsfundar bæjarstarfsmannafélaga fór fram í Vestmannaeyjum föstudaginn 18. september. 

Kjaraviðræður – undirbúningur og næstu skref

Fyrri hluti dagsins var helgaður almennum umræðum um undirbúning næstu kjaraviðræðna.

Rætt var meðal annars um samtal um ýmsar leiðir og sameiginleg málefni sem félögin geta unnið að í aðdraganda næstu samningalotu.

Landsfundi slitið

Landsfundinum var slitið að lokinni þriggja daga dagskrá í Vestmannaeyjum.

Við þökkum STAVEY kærlega fyrir einstaklega góðar móttökur og frábæra daga í Vestmannaeyjum.

Það er svo okkur hjá SfK sérstakt ánægjuefni að tilkynna að næsti Landsfundur bæjarstarfsmannafélaga verður haldinn af SfK í Kópavogi.

Við hlökkum mikið til að taka á móti hópnum að ári.