SfK minnir félagsfólk á að síðasti dagur til að skila inn umsóknum í líkamsræktar- og starfsmenntasjóð Starfsmannafélags Kópavogs er 15. desember 2026 til að fá afgreiðslu fyrir áramót.
Mikilvægt er að bæði umsókn og öll viðeigandi fylgigögn hafi borist fyrir lok skilafrests.
Hægt er að sækja um styrki og skila fylgigögnum í gegnum Mínar síður á heimasíðu félagsins, stkop.is.
Við hvetjum félagsfólk til að ganga frá umsóknum tímanlega og nýta þau réttindi sem það á hjá félaginu.
