Leiðin að skuldleysi – námskeið með Birni Berg fjármálaráðgjafa
Viltu ná betri tökum á skuldunum, lækka kostnað eins og hægt er og sjá skýrari leið að skuldlausu lífi?
Starfsmannafélag Kópavogs býður félagsfólki á námskeiðið Leiðin að skuldleysi með Birni Berg Gunnarssyni fjármálaráðgjafa miðvikudaginn 7. október.
Á námskeiðinu fer Björn á mannamáli yfir raunhæfar og margvíslegar leiðir til að vinna niður skuldir og byggja upp meira fjárhagslegt öryggi. Meðal þess sem verður tekið fyrir er hvernig best sé að takast á við húsnæðislán, bílalán og önnur neyslulán, hvenær endurfjármögnun getur átt við og hvaða aðferðir hjálpa fólki að halda sig við áætlunina til lengri tíma.
Björn hefur starfað við fjármálaráðgjöf og fjármálafræðslu í 18 ár og meðal annars stýrt greiningardeild Íslandsbanka og fræðslustarfi bankans.
📅 Miðvikudagur 7. október 2026
🕗 Kl. 20:00–22:00
📍 Kvan salurinn
💰 2.000 kr. fyrir virka félagsmenn SfK
Hægt er að skrá sig á námskeiðið hér fyrir neðan og þú færð sendan tölvupóst með nánari upplýsingum:
