Árlegur Landsfundur bæjarstarfsmannafélaga hófst í Vestmannaeyjum í dag, miðvikudaginn 16. september, og stendur yfir til 18. september. Fulltrúar bæjarstarfsmannafélaga víðs vegar að af landinu koma saman þessa þrjá daga til fræðslu, umræðna og samvinnu um starf félaganna.
Fundurinn fer fram í Akóges í Vestmannaeyjum og er fundarstjóri Karl Rúnar Þórsson.
Unnur Sigmarsdóttir, formaður STAVEY, setti Landsfundinn og bauð þátttakendur velkomna til Vestmannaeyja.
Vestmannaeyjar eru öflugt og vaxandi sveitarfélag
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja, kynnti sveitarfélagið og þær áherslur sem þar hafa verið lagðar í þjónustu við íbúa.
Íris er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum og menntaður grunnskólakennari. Í erindi sínu lagði hún meðal annars áherslu á að fjárfesting í menntun og fræðslumálum skili sér til samfélagsins alls.
Vestmannaeyjabær er öflugt og vaxandi sveitarfélag þar sem barnafjölskyldum hefur fjölgað og þjónusta við bæði yngri og eldri íbúa verið í forgangi. Meðal annars hefur verið lögð áhersla á snemmtæka íhlutun í leikskólum, aukinn stuðning við stoðkerfi skólanna og aukna tæknivæðingu grunnskóla.
Íris kynnti einnig verkefnið Kveikjum neistann, tíu ára þróunar- og rannsóknarverkefni í Grunnskóla Vestmannaeyja sem hófst árið 2021. Markmið verkefnisins er meðal annars að efla grunnfærni, áhugahvöt, seiglu og vellíðan nemenda með markvissum kennsluaðferðum og eftirfylgni.
Í erindinu kom jafnframt fram að mikil áhersla sé lögð á að skapa gott samfélag fyrir íbúa á öllum aldri, með öflugri þjónustu, atvinnulífi, menningu, mannlífi og íþróttastarfi. Samstaða og sterkt samfélagsvitund einkenna Vestmannaeyjar, ekki síst í ljósi þeirra áfalla sem samfélagið hefur tekist á við í gegnum tíðina.
Virk stjórn er sterkt félag
Gunnar Jónatansson hélt því næst erindið og vinnustofuna Virk stjórn er sterkt félag – frá fundarsetu til framkvæmda.
Þar var sjónum beint að því hvernig öflug og virk stjórn getur styrkt starf stéttarfélagsins í heild og þar með þjónustu og hagsmunagæslu fyrir félagsfólk.
Gunnar lagði áherslu á að stjórnarseta feli í sér bæði umboð og ábyrgð. Mikilvægt sé að stjórn geti rætt mál af hreinskilni í öruggu umhverfi, hlustað á ólík sjónarmið og tekið skýrar, sameiginlegar ákvarðanir sem síðan er fylgt eftir.
Traust, skýr verkaskipting og gott upplýsingaflæði skipta þar miklu máli. Stjórn geti falið öðrum verkefni en aldrei ábyrgð sína. Formaður leiðir starfið en stjórnin ber sameiginlega ábyrgð á ákvörðunum og stefnu félagsins.
Fjallað var um fjögur mikilvæg hlutverk stjórnar stéttarfélags: hagsmunagæslu, þjónustu við félagsfólk, ábyrgð á fjárhag og eignum félagsins og stefnumótun til framtíðar.
Í vinnustofunni fengu þátttakendur tækifæri til að skoða eigið stjórnarstarf og ræða hvað einkenni árangursríka stjórn. Meðal annars var horft til þess hvernig fundir eru undirbúnir, hvernig upplýsingar berast stjórnarfólki, hvernig ákvarðanir eru teknar og hvernig tryggt er að þeim sé fylgt eftir.
Slík vinna er mikilvæg fyrir stéttarfélög því öflug stjórnsýsla og skýr stefna styrkja getu þeirra til að gæta hagsmuna félagsfólks. Með því að taka reglulega stöðuna á eigin starfsháttum, horfa gagnrýnið á það sem betur má fara og skipuleggja verkefni fram í tímann getur stjórn byggt upp öflugra, skilvirkara og traustara félag.
Vinnustofunni lauk með því að horft var fram á veginn og þátttakendur hvattir til að greina hvaða verkefni og áherslur ættu að rata inn í starfsáætlanir félaganna á komandi ári.
Skipulag Landsfundar til umræðu
Síðdegis var skipulag Landsfundar tekið til umræðu og tillögur um framtíðarfyrirkomulag hans ræddar meðal þátttakenda.
Að formlegri dagskrá lokinni hélt hópurinn í Sagnheima Byggðarsafn og þaðan í sameiginlegan kvöldverð.













