Könnun um Sveitarfélag ársins!
Nú er könnun fyrir félagsfólk SfK að fara af stað. Þetta er fimmta árið sem könnunin er gerð og hún er send út til félagsfólks í dag, þann 12. maí 2026. Könnunin er send út frá Gallup, sem heldur utan um hana, og sendir hlekk til ykkar í tölvupósti.
Það er mjög mikilvægt að taka þátt en það þarf að ná 35% þátttöku að lágmarki til niðurstöðurnar séu marktækar og komast á listann.
- Í könnuninni er hægt að koma sjónarmiðum á framfæri um starfsumhverfi, líðan og aðstæður á vinnustöðum.
Sjö heppnir þátttakendur fá 15.000 kr í verðlaun en dregið verður út þegar könnun er lokið.
Fylgist vel með tölvupóstinum ykkar frá Gallup.
