Kjarasamningur Starfsmannafélags Kópavogs (SfK) og Samtaka íslenskra sveitarfélaga fyrir tímabilið 1. apríl 2024 til 31. mars 2028 er nú kominn úr prentun.
Samningurinn er prentaður í handhægri A5-stærð og gormaður. Eintök verða aðgengileg fyrir virkt félagsfólk SfK á skrifstofu félagsins.
Félagsfólk sem hefur áhuga á að fá eintak getur skráð sig á lista hér:
Haft verður samband þegar hægt er að sækja samninginn á skrifstofu SfK.
Rafræn útgáfa samningsins er áfram aðgengileg á heimasíðu SfK fyrir þau sem kjósa að nálgast efnið með þeim hætti.
