Kjarasamningur Starfsmannafélags Kópavogs (SfK) og Samtaka íslenskra sveitarfélaga frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028, er nú að fara í prentun og munu eintök verða aðgengileg á næstunni fyrir virkt félagsfólk SfK.
Áhugasamir félagar geta tryggt sér eintak með því að skrá sig á lista hér fyrir neðan. Kjarasamningurinn verður prentaður í stærð A5 og verður með gormum. Haft verður samband við viðkomandi þegar samningarnir eru tilbúnir og hægt verður að sækja þá á skrifstofu félagsins.
Rafræn útgáfa samninganna er áfram aðgengileg á heimasíðu SfK fyrir þá sem kjósa að nálgast efnið með þeim hætti.
