Kjarasamningar BSRB-félaga eru enn í gildi
Kjarasamningar aðildarfélaga BSRB eru áfram í fullu gildi. Samningar á bæði opinberum og almennum vinnumarkaði gilda til ársins 2028 og engin breyting hefur orðið á stöðu kjarasamninga félagsfólks SfK að svo stöddu.
Á almennum vinnumarkaði eru ákveðin forsenduákvæði í kjarasamningum sem taka mið af þróun verðbólgu. Þar sem verðbólga mælist nú yfir 4,7% hefur ein forsenda samninganna ekki staðist. Af þeim sökum hefjast viðræður milli Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins um hvernig bregðast skuli við stöðunni.
Náist ekki niðurstaða í þeim viðræðum geta stéttarfélög á almennum vinnumarkaði og Samtök atvinnulífsins sagt kjarasamningunum upp fyrir 8. október næstkomandi.
Á opinbera vinnumarkaðnum gilda önnur ákvæði um þessar aðstæður. Verði samið um breytingar á launum eða kjörum á almennum vinnumarkaði ber að hefja viðræður um hvernig sambærilegar breytingar komi til framkvæmda í samningum opinberra starfsmanna. Markmiðið er að tryggja að félagsfólk á opinberum vinnumarkaði njóti sambærilegra kjarabóta og samið verður um á almennum markaði.
BSRB hefur lagt áherslu á að sérstaklega verði horft til þeirra hópa sem finna hvað mest fyrir áhrifum verðbólgu og hárra vaxta. Samtökin eru nú í samtali við stjórnvöld og aðra aðila vinnumarkaðarins um viðbrögð við þeirri stöðu sem upp er komin.
Ef kjarasamningum á almennum vinnumarkaði verður sagt upp skapast heimild fyrir aðildarfélög á opinbera vinnumarkaðnum til að segja sínum samningum upp. Slík uppsögn gerist þó ekki sjálfkrafa, heldur yrði það ákvörðun hvers aðildarfélags hvort sú heimild yrði nýtt.
