Starfsmannafélag Kópavogs býður félagsfólki upp á ljúffengt og skemmtilegt jólakonfektnámskeið með Halldóri konditor fimmtudaginn 26. nóvember næstkomandi.
Á námskeiðinu fá þátttakendur að spreyta sig á konfektgerð undir leiðsögn Halldórs, læra að útbúa girnilegt og fallegt jólakonfekt og fá góð ráð og hugmyndir frá fagmanninum. Tilvalið tækifæri til að koma sér í jólaskap og læra að búa til gómsætt konfekt fyrir hátíðarnar!
Nánari upplýsingar:
Dagsetning: Fimmtudagur 26. nóvember 2026
Tími: Kl. 19:30–21:30
Staðsetning: Gala salurinn í Kópavogi
Efnisgjald: 2.000 kr. á mann
Þátttaka: Námskeiðið er ætlað virkum félagsmönnum SfK.
SfK niðurgreiðir námskeiðið og greiða þátttakendur því aðeins 2.000 kr. í efnisgjald. Nánari upplýsingar verða sendar í tölvupósti þegar skráningu er lokið.
Hlökkum til að eiga með ykkur notalega og ljúffenga stund í aðdraganda aðventu!
