Í morgun héldu ASÍ og BSRB opin fund um húsnæðismál í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga.
Mikilvægi þess að búa við húsnæðisöryggi og viðráðanlega leigu var í forgrunni á morgunfundi þar sem fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar, sveitarfélaga og stjórnvalda komu saman til að ræða stöðu og framtíð húsnæðismála á Íslandi.
Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, opnaði fundinn með þungri áherslu á að húsnæðismál væru eitt brýnasta verkefnið sem við stöndum frammi fyrir. Hann benti á að þróun síðustu ára hefði leitt af sér gríðarlegt ójafnvægi á fasteignamarkaði þar sem miklar verðhækkanir, háir stýrivextir og aukin greiðslubyrði væri til þess fallið að fólk gæti síður byggt eða keypt húsnæði. Í því samhengi spurði hann hvar láglaunafólk ætti að búa?
Um 4.000 manns eru á biðlista eftir íbúð hjá Bjarg íbúðarfélagi. Finnbjörn sagði að húsnæðisöryggi væri grundvallarmannréttindi fólks og að sveitarfélögin bæru ríka ábyrgð.
Hagfræðingarnir Róbert Farestveit (ASÍ) og Jana Víglundsdóttir (BSRB) fóru yfir tölfræði markaðarins og þróun leigumarkaðarins síðustu áratugi. Leigumarkaðurinn hefur stækkað verulega frá efnahagshruninu 2008 og í dag búa um 28% landsmanna í leiguhúsnæði, þar af tæpur fjórðungur barna og um þriðjungur einstæðra foreldra.
Nær helmingur leigjenda búa við íþyngjandi húsnæðiskostnað, en hann er skilgreindur sem meira en 40% af ráðstöfunartekjum heimilis. Þau fóru yfir hvernig takmarkandi lánaskilyrði, takmarkað framboð ódýrra fasteigna og lítil geta til að safna fyrir útborgun gerði þessum hópi nær ómögulegt að komast inn á markaðinn sem eigendur fasteigna.
Anna Guðmunda Ingvarsdóttir, aðstoðarforstjóri HMS kynnti nýja húsnæðisstefnu sem gildir til ársins 2038. Þar er fyrsta markmiðið að ná jafnvægi á húsnæðismarkaði þar sem fjölbreytt framboð íbúða mæti þörf og að þróun húsnæðis- og leiguverðs sé stöðugt. Þvínæst að skilvirk stjórnsýsla og bætt starfsumhverfi mannvirkjagerðar styðji við gæði, öryggi rekjanleika og hagkvæmni. Að það sé markmið að landsmenn búi við húsnæðisöryggi og jafnrétti í húsnæðismálum og að slíkt framboð stuðli að virkum vinnumarkaði um allt land.

Pallborðsumræður áttu sér stað í lokin þar sem tóku til máls; Dagur B. Eggertsson, formaður aðgerðarhóps stjórnvalda í húsnæðismálum, Björn Traustason, framkvæmdarstjóri Bjargs íbúðafélags, Sólveig Anna, formaður Eflingar og stjórnarmaður í Bjargi og Valgerður Rún Benediktsdóttir, yfirlögfræðingur Samtaka íslenskra sveitarfélaga.
Hér má horfa á fundinn í heild sinni:
Ný greining ASÍ og BSRB um félagslegt húsnæði og þróun almenna íbúðakerfisins





