Fara í efni
05.08.2026 Fréttir

Hinsegin dagar og gleðiganga!

Deildu

Hinsegin dagar hófust í dag og munu þeir standa yfir fram á sunnudag. Hápunkturinn er gleðigangan á laugardaginn sem verður í Reykjavík.

Gengið er frá Hallgrímskirkju kl. 14:00. Þaðan verður gengið niður eftir Skólavörðustíg, Bankastræti, Lækjargötu og Fríkirkjuvegi. Gangan endar við gatnamót Fríkirkjuvegar og Skothúsvegar en áfram verða atriði í Sóleyjargötu og inn í Hljómskálagarð þar sem útitónleikarnir verða.

Gleðigangan er hápunktur Hinsegin daga. Í henni sameinast lesbíur, hommar, tví- og pankynhneigðir, trans fólk, intersex fólk og aðrir hinsegin einstaklingar ásamt fjölskyldum sínum og vinum til að staðfesta tilveru sína og minna á baráttumál sín. Gangan er í senn kröfuganga hinsegin fólks, sem kallar eftir jafnrétti, vitundarvakningu og útrýmingu mismununar, sem og vettvangur til að fagna því sem hefur unnist í baráttunni.

Stéttarfélögin ganga saman

Að þessu sinni munu félagar í BSRB, KÍ, ASÍ og BHM ganga saman við dúndrandi undirleik Lúðrasveitar verkalýðsins. Félagar í SfK eru hvattir til að taka þátt. 


Starfsmannafélag Kópavogs styður heilshugar við réttindabaráttu hinsegin fólks og hvetur til þátttöku í gleðigöngum laugardagsins.