Fara í efni
17.04.2026 Fréttir

Hækkun launatöflu 1. apríl og persónuuppbót 1. maí 2026

Deildu

Starfsmannafélag Kópavogs vekur athygli á því að launatöflur hækkuðu þann 1. apríl síðastliðinn um 23.750 kr. eða að lágmarki um 3,50% sbr. launatöflu 3. Mikilvægt er að fylgjast með launaseðlum svo allt sé þar rétt skráð. 

Launatöflur má sjá ef smellt er á hnappinn hér fyrir neðan:

 

Samkvæmt kjarasamning á starfsmaður að fá greidda persónuuppbót 1. maí ár hvert. 

Þann 1. maí 2026 er persónuuppbót 62.000 kr. eingreiðsla, miðað við 100% starf síðustu 12 mánuði.

Greitt er hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma síðustu 12 mánuði fyrir greiðsludag. Hafi starfsmaður gengt hlutastarfi eða starfað hluta úr ári, skal hann fá hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma.

💯 SfK hvetur félagsfólk til þess að fylgjast með því að greiðslan berist örugglega.