Septembermánuður er tileinkaður vitundarvakningu um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna. Í tengslum við átakið Gulur september er sjónum beint að kærleika, aðgát og umhyggju í samfélaginu og mikilvægi þess að við tökum eftir hvert öðru.
Gulur dagur er 10. september, á alþjóðlegum forvarnardegi sjálfsvíga. Þann dag eru landsmenn hvattir til að sýna stuðning með því að klæðast gulu, lýsa upp byggingar eða vekja athygli á málefninu með öðrum hætti.
SfK vill minna á að geðheilsa er mikilvægur hluti af heilsu og öryggi á vinnustöðum. Gott starfsumhverfi, mannleg samskipti, stuðningur, virðing og svigrúm til að leita sér hjálpar geta skipt miklu máli þegar fólk glímir við vanlíðan, álag eða erfiðar aðstæður.
Ef þú finnur fyrir mikilli vanlíðan eða hefur áhyggjur af einhverjum í kringum þig er mikilvægt að leita aðstoðar. Píeta samtökin veita stuðning í síma 552 2218 og ef um bráða hættu er að ræða skal hringja strax í 112.
SfK hvetur félagsfólk og vinnustaði til að taka þátt í Gulum september og minna á að geðrækt, umhyggja og samtal eru hluti af heilbrigðu og öruggu vinnuumhverfi.

