Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, segir að afnám áminningarskyldu sé ekki tæknilegt smáatriði heldur róttæk breyting á leikreglum vinnumarkaðarins.
Í nýrri umfjöllun líkir hún breytingunni við að taka „gula spjaldið“ af fótboltadómaranum. Þótt það geti einfaldað ferlið fyrir stjórnendur, verði afleiðingin harðari og ófyrirsjáanlegri vinnustaður þar sem minna jafnvægi ríkir.
Að hennar mati gegnir áminningarskyldan lykilhlutverki í að tryggja að starfsfólk fái skýra ábendingu og raunhæft tækifæri til að bæta ráð sitt áður en til uppsagnar kemur. Hún sé einföld en mikilvæg vernd gegn geðþótta og stuðli að málefnalegum ákvörðunum.
Verði skyldan afnumin færist vald í auknum mæli til stjórnenda, sem geti leitt til minni starfsöryggis, aukinnar óvissu og meiri hættu á ósanngjörnum ákvörðunum. Slík þróun sé ekki til þess fallin að bæta starfsumhverfi heldur veikja það.
Sonja bendir jafnframt á að með breytingunni væri verið að fjarlægjast þau viðmið sem gilda á Norðurlöndum og víðar í Evrópu, þar sem sambærileg vernd telst hornsteinn réttláts og stöðugs vinnumarkaðar.
Að hennar sögn snýst málið ekki um að einfalda kerfið, heldur hvaða vinnumarkað samfélagið vilji byggja upp – hvort auðveldara eigi að vera að segja upp fólki eða tryggja réttlátt og sanngjarnt starfsumhverfi.
Sjá pistil Sonju hér:
